Skilmálar

Söluaðili er Álfasaga ehf., kt. 511096-2279, Bæjarflöt 2, Reykjavík.

Söluaðili  áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Verð

Verð í vefverslun eru öll gefin upp í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Ef heimsending er valin þá bætist sendingakostnaður við áður en greiðsla fer fram. Vinsamlega athugið að verð í vefverslun geta breyst án fyrirvara.

Greiðslumöguleikar

Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti í netverslun Álfasögu ehf. Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa, Maestro, Mastercard og Eurocard. Vefverslun Álfasögu ehf. notar örugga greiðslugátt frá Valitior á Íslandi.

Afhendingarskilmálar

Þegar verslað er á vefverslun Álfasögu ehf. er hægt að velja á milli þess að sækja vöruna á Bæjarflöt 2, Reykjavíki eða fá hana senda heim. Boðið er upp á fría heimsendingu þegar keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira. Ef heimsendingarmátinn er valinn og kostnaður er undir 15.000 kr. þá leggst 1550 kr. sendingargjald á pöntunina.

Á virkum dögum eru pantanir keyrðar út á milli kl. 7:00 og 16:00 en á laugardögum er keyrt út á milli kl. 7:00 og 12:00.

Skrifstofa Álfasögu er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00. Pantanir verða að vera sóttar á opnunartíma. Á laugardögum má sækja pantanir milli kl. 9:00 og 12:00

Allar pantanir eða afpantanir þurfa að berast Álfasögu ehf. fyrir kl. 12:00 síðasta virka dag fyrir afhendingu, sé verið að panta fyrir mánudag þarf pöntun að berast fyrir 12:00 föstudaginn á undan.

Skila- og endurgreiðsluréttur

Enginn skila- og endurgreiðsluréttur er á vörunum. En komi upp kvörtun er hvert mál skoðað fyrir sig.

Trúnaður 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Öryggi og persónuvernd á vefnum

Þegar þú notar vefinn www.alfasaga.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Álfasaga ehf. miðlar þeim ekki til annara. Álfasaga ehf. virðir friðhelgi perónuupplýsinga viðskiptavina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi. 

Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)

Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði Álfasögu, www.alfasaga.is  er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur Álfasögu þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að Álfasaga geti sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

Notkun Álfasögu ehf. á vafrarakökum

Með því að samþykkja skilmála Álfasögu ehf. (www.alfasaga.is) um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:

  • Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
  • Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
  • Að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
  • Að birta notendum auglýsingar
  • Að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið.

Álfasaga ehf. notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til að telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum. 

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við skilmála GDPR frá 2018.

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á alfasaga@alfasaga.is

Neðst á öllum markpósti sem Álfasaga sendir er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

Að versla á vefnum okkar

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

 

Leita